Ráðin til HÍ

Ásta Möller hefur verið ráðin forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og hefur þar störf í vikunni. Hún mun jafnframt hefja kennslu í stjórnmálafræðideild nú á vormisseri.

Þeir hugsa vel um sína fyrrum þingmenn, Sjálfstæðisflokkurinn og eru snöggir að útvega þeim vinnu eftir að þingmennsku líkur. 

Þetta er dæmigerð pólitísk ráðning.


mbl.is Ásta Möller ráðin til HÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Þú ert skarpur maður Jakob Falur. En er það svo ýkja fráleitt að Ásta Möller hafi fengið starfið vegna eigin verðleika?

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 18.1.2010 kl. 12:07

2 Smámynd: Ólafur Als

Snöggir? "Missti" hún ekki vinnuna í maí síðastliðnum? Það eru því liðnir 8 mánuðir frá því að hún sat á alþingi. Að auki; hvað hefur þú fyrir þér í því að þessi flokkur, sem þú nefnir, hafi sérstök inngrip í mannaráðningar í HÍ? Ef þá nokkur?

Ef eitthvað er, þá er það mun algengarar að kennaraflóra HÍ sé prýdd öðrum en bláum litum. Af þeim kennurum sem ég hef haft kynni af þar á bæ eru vel flestir á annarri pólitískri línu en sjálfstæðisflokkurinn. Í mínum huga stendur þá upp úr: Hefur Ásta reynslu og menntun til þess að valda þessu starfi, í samanburði við aðra umsækjendur?

Um það get ég ekki fullyrt en ef menn kjósa að horfa í flokksskirteini hennar, þá kynni einhver að segja að það sé til eftirbreytni að fleiri viðhorf séu viðruð í félagsmáladeildum HÍ en hin miðlægu og til vinstri.

Ólafur Als, 18.1.2010 kl. 13:45

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Kannski hefur hún fengið starfið vegna sinna miklu hæfileika og flokksskýteini hennar hafi engu máli skipt.

Jakob Falur Kristinsson, 19.1.2010 kl. 10:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband