Nokkur gullkorn úr munni Guðbjarts Jónssonar frá Flateyri

Þetta mál er stærra í hugum okkar en við sjálf gerum okkur grein fyrir.

Ég er upphaflega fæddur í Hafnarfirði, svo inn á Hesti og eftir það á Flateyri.

Hundurinn á Gyllir var alltaf fyrsti maður á dekk.

Skuttogararnir drepa allt, bæði lifandi of dautt.

Hann var eins og hrókur í hænsnahóp.

Hann er fasisti á vín og tóbak.

Ég hélt að hann væri hærri.

Með opinn hausinn út um gluggann.

Glöggið í mér er ekki í lagi.

Það er stutt í allar áttir í Stykkishólmi.

Elli er einn af tvíburunum.

Hvaða ár var frostaveturinn mikli 1918?

Heimild: Dagatal Önfirðingafélagsins 2005


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Vagninn var líka á undan sinni framtíð. Einu sinni var Guðbjartur í svo miklum byl að hann sá ekki á milli augna. Guðbjartur er algjör snillingur og hann verður í manna minnum löngu eftir að hann er dauður.

Ingólfur H Þorleifsson, 19.5.2007 kl. 23:08

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er góð viðbót hjá þér Ingólfur og ég er þér innilega sammála að svona menn eru snillingar á sinn hátt og verð ógleymannlegir.  Slíkir menn gera lífið og tilveruna skemmtilegri.

Jakob Falur Kristinsson, 20.5.2007 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband