Tilboð vegna Flatreyri

Það sem mér er mjög annt um Vestfirði og vill hag þeirra sem mestan og sem stuðning við alla þá sem hafa  áhyggjur af Flateyri geri ég eftir farandi tilboð:

1.     Er reiðubúinn að kaupa öll hlutabréf í Kambi hf. af Hinrik og félögum á því verði sem hlutlaustlaus endurskoðandi telur vera rétt verð.

2.     Kaupverðið verður staðgreitt um leið og tilboðið verður samþykkt.

3.     Ætla að halda áfram rekstri Kambs hf. áfram í óbreyttri mynd og alllt starfsfólk a.m.k. 120 manns mun halda sinni vinnu.

4.     Ætla að koma með a.m.k. 3 skip yfir 100 tonn að stærð til að efla þá starfsemi sen fyrir er.

5.     Ætla að koma með aflaheimilir a.m.k. 1500 til 3000 tonna aflakvóta af bolfiski í rekstur Kambs hf.

6.    Ætla að gera Kamb hf. að einu öflugasta fyrirtæki í sjávarútvegi á Vestfjörðum.

7.    Veita árlega a.m.k. a.m.k. 100 milljónum til menningarstarfs á Flateyri árlega.

8.    Reisa styttu af Hinrik og félögum á fallegum stað á Flateyri, endurreisa hina frægu minnjar um verksmiðjuna senm stóð á Sólbakkka.

9.    Beita mér fyrir því að Einar Oddur verði gerður að heiðursborgara á Flateyri og sérstakur Einarars-dagur verðinn haldinn hátíðlegur á Flateyri ár hvert.

9.    Allar þær eignir sen Kambur hefur selt nú þegar verða keyptar aftur sem fyrst. Ef það tekst ekki verða keyptt nýtt í staðinn.

10.   Stórefla smábátaútgerð frá Flateyri.  Byggja nýjar íbúðir fyrir erlent fólk sem vinnur á Flateyri.

Þar sem ég er ekki auðugur maður í krónum talið standa að þessu tilboði sem mínir bakhjarlar, bankar og fjárfestingarfélög sem ég hef fengið til liðs við mig og sjá þarna góðan kost til að ávaxta sitt fé.  Og  að sjálfsögðu er vonast eftir stuðningi bæjarstóra Ísafjarðarbæjar Halldórs Halldórssonar sem hefur lýst því margoft yfir að hann muni gera allt sem hann getur  að bjarga Flateyri,  Tilboð þetta hefur ekki verið sent enn til eiganda Kambs hf.  Því beðið er eftir að endurskoðendur ljúki sinni vinnu.  En á meðan bið ég eigendum Kambs að bíða með frekari sölur á eignum Kambs hf.  Þið munuð fá í ykkar vasa það sem ykkur ber og eigið með réttu. Og að lokum góðir íbúar á Flateyri, ykkar bíður björt framtíð því að væntanlegu  tilboði mun ekki vera hægt að hafna.  Stöndum saman ég og þið og við munum uppskera því sem við sáum.  Ég er ekki minni Vestfirðingur en þið og þess vegna er ég að blanda mér í þetta, en eitt skulið þið hafa í huga að það er ekki skortur á peningum í okkar góða landi, bíð með tilhlökkun að fá að vinna með ykkur.

ÁFRAM FLATEYRI YKKAR BÍÐUR BJÖRT FRAMTÍÐ. 

  

VONANDI NÆSTI KONUGUR FLATEYRAR OG VIL ÉG TAKA FRAM AÐÐ HÉR ER EKKI UM GRÍN AÐ RÆÐA.

      

                     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Mér finnst líklegast, Jakob, án þess að þekkja til fjárfestahópsins þíns, að auðveldast verði að koma í framkvæmd þessum áformum um stytturnar,  minnismerkin og heiðursborgaran...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 24.5.2007 kl. 11:06

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Góður Jakob mér líst vel á þessa hugmynd hjá þér.

Hallgrímur Guðmundsson, 25.5.2007 kl. 01:04

3 identicon

Þú lætur mig vita Jakob,ef þú tekur við  vonandi fæ eg vinnu hjá þér það er stutt að fara hjá mér bara í gegn um göngin,. En eg vil helst ekki vinna við styttuna. Nema þessi uppákoma verði til þess kvótakerfið fari til andskotans, þá skal eg hjálpa við styttuna og hafa hana STÓRA. 

bjarnidyrfjord 25.5.2007 kl. 21:12

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já Hafsteinn, þetta er ekkert sem á að vera mjög erfitt.  Þeir sem eru í mínum fjárfestingahóp eru allt þekktir menn sem hafa starfað lengi í sjávarútvegi, auk banka, tryggingingar- og olíufélaga.  Auðvitað mun þetta kosta nokkra milljarða ef ekki tugi milljarða en ekki þýðir að horfa of mikið á það.  Það verður að bjarga Flateyri hvað sem það kostar.

Jakob Falur Kristinsson, 7.6.2007 kl. 05:55

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég gleymdi að taka því fram hér áðan, að við félagarnir sem höfum áhuga á að blása til stórsóknar á Flateyri erum að leita að öðru fyrirtæki sem er á sviði uppsjávarveiða og vinnslu til að sameina það Kambi hf. og eins og staðan er í dag eru miklar líkur að það takist.  Slíkt yrði ekki einungis mikil lyftistöng fyrir Flateyri, heldur mun það styrkja allt norðursvæðið, sem mun ekki veita af.

Jakob Falur Kristinsson, 7.6.2007 kl. 06:10

6 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þessi hugmynd hjá mér með styttuna var nú bara sett fram til þess að okkar afkomendur gætu haft fyrir augum tákn um heimsku manna.  Kvótakerfið er á góðri siglingu til andskotans og ekkert getur bjargað því.  Það er innbyggt í kerfið að það étur sig sjálft.

Jakob Falur Kristinsson, 10.6.2007 kl. 06:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband