Sandgerðisbréf 4

Ekki eru góðar fréttir frá mér núna.  Ég skrapp til Reykjavíkur þann 17. júní sl. og var á leið heim milli 8,30 og 9,00, þegar ég kom að gatnamótunum við Keflavík ætlaði ég að koma við í sjoppu og fá mér pylsu og kók en sólinn var orðin mjög lágt á lofti og talsverð umferð á móti og var ég orðinn talsvert þreyttur á akstrinum og þegar ég ætlaði að beygja inní Keflavík blindaði sólin mig algerlega og ég sá ekki neitt og fór of langt áður en ég beygði sem varð til þess að bíllinn hentist uppá umferðareyju sem er þarna og yfir hana og fram af kantinum hinum megin.  Ég fékk verkstæði í Keflavík til að taka bílinn og er hann stórskemmdur og áætlaður viðgerðakostnaður um 300-400 þúsund sem ég á mjög erfitt með að greiða af mínum örorkubótum.  Vegna einhverra mistaka hafði bíllinn dottið út úr kaskótryggingu og sit ég því sjálfur upp með tjónið.  Það er mjög erfitt fyrir mig að vera bíllaus því vegna fötlunar minnar á ég frekar erfitt með mikinn gang.  Synir mínir ætla að veita mér einhverja aðstoð en það dugar ekki til og bið ég því alla sem þetta lesa og hafa tök á að aðstoða mig í þessum erfiðleikum mínum.  Ég er búinn að vera í algeru sjokki síðan þetta skeði og þar af leiðandi ekki virkur hér á blogginu.

Símanúmer mitt er 456-2107


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband