Föstudagur 25. ágúst 2006

Nú er ég byrjaður á fullu í sjúkraþjálfun í Keflavík.  Fór í fyrsta tímann á þriðjudag og var svo aftur í morgun.   Ég á að mæta þrisvar í viku og er hver tími 40 mínútur.  Sl. þriðjudag fór ég í atvinnuviðtal hjá BM-ráðgjöf í Keflavík og fæ svar á mánudaginn, þetta er fyrirtæki sem tekur að sér verkefni fyrir ýmsa aðila og er aðallega fólgið í því að hringja í fólk til að safna peningum með sölu á bókum, diskum ofl. einnig gerir það skoðanakannanir.  Aðalstöðvar fyrirtækisins eru í Reykjavík en útibú á Akureyri og í Keflavík.  Vinnutíminn er frá kl. 17 til 22 og væri þetta vinna sem henntaði mér vel, þarna vinnur mest ungt fólk en sú sem ræddi við mig sagði það vera stefnu hjá þeim að fjölga fólki á mínum aldri svo ég er nokkuð bjartsýnn.   Veðrið hér í Sandgerði undanfarna daga hefur verið frekar leiðinlegt vindur, rigning og nokkuð kalt en í dag er alveg þurrt, skýjað og frekar hlýtt. 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband