Miðvikudagur 30.08.2006

Í dag verður frekar rólegt hjá mér aðeins að mæta í sjúkraþjálfun kl: 15,00 og síðan í vinnuna kl: 17. Í gær var fyrsti vinnudagurinn hjá BM-ráðgjöf frá 17,00 til 22,00 og fór fyrsti klukkutíminn í að setja mann inní starfið.  Verkefnið hjá mér í gær var að hringja út fyrir Heimilishjálp Íslands og selja DVD myndir og geisladiska eða óska eftir fjárstyrk.  Þetta gekk bara nokkuð vel og líst mér bara vel á en ég var ansi þreyttur þegar ég kom heim enda ekkert unnið í tæp þrjú ár.  Þetta var frekar lélegt kvöld hjá öllum, ég náði í kr. 2.000,- en ég sá á töflunni sem skrifað er á að þau sem eru vön þarna voru með 5-6 þúsund.  Hver starfsmaður fær 15% bónus af því sem honum tekst að selja.  Annars var fólk sem er búið að vinna þarna lengi að segja mér að fyrsta vikan væri erfiðust svo færi maður að vinna þetta léttara.  Það er mikill munur að vera aftur farinn að vinna og vera innan um fólk.  Maður fær 4x10 mínútur í pásu og ræður hvernig það er tekið.  Við vorum þrjú sem byrjuðum ný í gær síðan kom í heimsókn framkvæmdastjóri BM-ráðgjöf í Reykjavík og ræddi hann lengi við mig og sagðist sjá að ég hefði það góða menntun og reynslu að sennilega fengi ég að takast á við flóknari verkefni.  Launin hjá mér eru í byrjun kr: 850 á tímann en hækka svo eftir ákveðin reynslutíma í 1.150,-  nú er aðeins unnið á virkum dögum en frá og með 1. september verður líka unnið á laugardögum.  Þær tekjur sem ég kann að hafa þarna koma til með að skerða örorkubæturnar frá TR og mun ég í raun halda eftir um 10% þannig að ekki verður ekki mikil breyting á fjárhagnum.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband