Kartafla í skóinn

Þær stöllur Paris Hilton og Britney Spears eru efstar á lista yfir þá, sem bandarísk börn telja að eigi að fá kartöflur í skóinn fyrir jólin vegna þess að þær hafa hegðað sér illa. Lindsey Lohan var heldur ekki talin hafa verið sérstaklega þæg á árinu.

Börnum á aldrinum 2-12 ára þótti, að sjónvarpspersónan Hannah Montana, leikin er af Miley Cyrus, væri viðkunnanlegasti skemmtikrafturinn og unglingar á aldrinum 13-17 ára töldu leikkonan Angelina Jolie ætti mest skilið að fá góða gjöf.

Listinn er byggður ákönnun, sem E-Poll Market Research gerði en á annað þúsund börn voru spurð álits.

Hverslags andskotans kjaftæði er þetta, báðar eru þetta indælar og fallegar konur og þótt eitthvað hafi mikið farið fyrir þeim í skemmtanalífinu, þá voru þær bara að skemmta sér og höfðu það gaman og gott.  Eru ekki margir sem eru að skemmta sér ansi mikið.  Ef taka á mark á þessari könnun sem ég geri ekki, þá mættu nú margir aðrir fylgja með og hræddur er ég um að öll kartöfluuppskera Bandaríkjanna dugði varla til að setja í alla þá skó sem þarf að setja í.  Bara Bush þyrfti að fá nokkur tonn.  Ég blæs á svona kjaftæði.


mbl.is Paris og Britney eiga að fá kartöflu í skóinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband