Ölæði

Maður nokkur í Malasíu bar eld að húsi sínu í ölæði, en sökum hvassviðris breiddist bálið fljótt út og svo fór, að næstum allt þorpið brann, að sögn lögreglu í dag. Rúmlega 300 manns misstu heimili sín, en ekki eru fregnir af mannskaða.

Lögreglustjórinn í þorpinu tjáði Associated Press að svo að segja hvert einasta hús í þorpinu hefði brunnið til kaldra kola. Skjólshúsi hafi verið skotið yfir íbúana með því að reisa tjöld til bráðabirgða.

Brennuvargurinn hefur verið handtekinn. Hann er 29 ára. Hann segist hafa verið ölvaður og hafa lent í rifrildi við konuna sína, með þessum afleiðingum.

Þetta kalla ég fyllirí með stæl og ekkert hálfkák á hlutunum og er í raun nokkur eftir sjá í þessum húsum eru þetta ekki bara hálfónýtir kofar sem lítið gagn er í.  Annars ætti konan að skammast sín að koma aumingja manninum í svona mikið uppnám.  Hún hefði betur haldið kjafti.


mbl.is Kveikti í heilu þorpi í ölæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

kannski hálfónýtir kofar, en eina hússkjólið sem fólkið hafði, svo það er ekki lítið.

Kannski kom HANN henni í uppnám fyrst hehehehe

Guðrún Jóhannesdóttir, 30.11.2007 kl. 01:05

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já oftast eru báðir sekir þegar tveir deila.  Vonandi fá íbúarnir betri íverustaði eftir þetta "slys".

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.11.2007 kl. 12:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband