Nokkuð um innbrot á höfuðborgarsvæðinu

Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Tveimur fartölvum var stolið úr húsi í Garðabæ, skartgripir og myndavél voru tekin af heimili í Árbæ og í Hafnarfirði var brotist inn í tvær geymslur í fjölbýlishúsi. Þá var peningaveski stolið úr bíl í Kópavogi

 Kringlunni var hálfsextug kona tekin fyrir þjófnað en hún stal fatnaði úr tveimur verslunum. Í Smáralind var rúmlega tvítug kona stöðvuð fyrir sömu sakir. Hún hafði farið í mátunarklefa verslunar með náttslopp og nærföt og klippti þar þjófavörnina af vörunum. Hún tók síðan náttsloppinn ófrjálsri hendi en skildi nærfötin eftir í klefanum.

Aðspurð um nærfötin sagðist konan hafa ætlað að stela þeim líka en hætt við þegar í ljós kom að þau pössuðu ekki á hana.

Það er vandi að vera þjófur, því tilgangslaust er að stela fötum sem ekki passa.  Það hljóta að vera til einhver námskeið í því hvernig á að gera þetta rétt.


mbl.is Nokkuð um innbrot á höfuðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er meira um svona en sagt er frá í fréttum.  En þarnar eru oftast sorgarsögur á bakvið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.12.2007 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband