Olíufélögin

Olíufélögin hafa grætt á sveiflum á olíuverði að undanförnu. Þau hafa nýtt tækifærið til mikilla hækkana en ekki lækkað verðið sem skyldi þegar tækifæri vinnst að mati Félags Íslenskra bifreiðaeiganda.

Það munaði ekki um það 5 milljórir á dag og svo þykjast þessir fuglar alltaf hafa verðin í samræmi við heimsmarkaðsverð á hverjum tíma.  Nú kemur bara í ljós að það er eintóm lygi.

Nú eiga allir bifreiðaeigendur að taka sig saman og refsa stóru olíufélögunum þremur sem eru leiðandi á markaðnum og hætta að skipta við þau og kaupa allt eldsneyti hjá þeim litla á markaðnum sem er Atlantsolía.  Ef samstaða væri mikil væri öruggt að þau hættu svona framkomu við sína viðskiptavini.


mbl.is Græða fimm milljónir á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki vera svona vitlaus, Atlantsolía kaupir alla sína olíu hjá skeljungi.

Jón 30.7.2008 kl. 19:54

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er nú bar kjaftæði Jón, ég hringdi í gær í innkaupastjóra Atlandsolíu og hann sagði að þeir flyttu inn allt sitt eldsneyti sjálfir en það kæmi fyrir að þeir væru kanski að kaupa af sama félagi erlendis og hin olíufélögin og þá væri oft notuð olíuskip með hinum félögunum.  Hann sagði einnig að þeir keyptu stundum olíu erlendis frá Shell sem kæmi til landsins með sama skipi og væri að flytja fyrir Skeljung hf.  Ég held að þér væri nær Jón að kynna þér málin betur áður en þú ásakar mig eða aðra um að vera vitlaus.

Jakob Falur Kristinsson, 31.7.2008 kl. 06:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband