Sáttafundur.

Ljósmæður á fundi. Engin niðurstaða fékkst á fundi fulltrúa ljósmæðra og fjármálaráðuneytisins í dag. Verkfall ljósmæðra stendur því áfram til miðnættis. Nýr fundur er boðaður klukkan 13 á mánudag og leysist deilan ekki hefst nýtt tveggja sólarhringa verkfall miðvikudaginn 17. september.

Auðvitað kemur ekkert út úr þessum fundum hjá ríkissáttasemjara, því ríkið er ákveðið að semja ekki við ljósmæður hvað sem á gengur.  Hvar er Samfylkingin nú, sem boðaði að jafna launamun kynjanna og það var meira að segja sett í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar.  En hver er árangurinn?  Hann er sá að launamunur kynjanna hefur aukist um 3% á þessu kjörtímabili.  Þegar Ingibjörg Sólrún var spurð út í deiluna við ljósmæður svaraði hún því til að 25% hækkun á launum þeirra væri full mikið í einu stökki, en ekki gaf hún upp hvað hún teldi hæfilegt í því sambandi.  Hvernig ætlar Samfylkingin að útrýma launamun kynjanna ef ekki má hækka laun hefðbundna kvennastétta eins og ljósmæðra.  Allt tal um að þetta verði gert seinna á kjörtímabilinu er nú bara yfirlýsing um að gera ekki neitt.  Ef 25% hækkun er of mikil í einu stökki má þá ekki skipta þessari launahækkun í tvo hluta ef það leysti málið.  Af öllum flokkum þá átti maður síst von á að Samfylkingin yrði í því hlutverki að standa í stríði við ljósmæður og ekki aðeins að neita að semja við þær, heldur er rikið að fara í mál við ljósmæður. 

Til hamingju Ingibjörg Sólrún Gísladóttir með frábæran árangur.


mbl.is Árangurslaus sáttafundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband