Spennistöðvar

Fyrirmyndar spennistöð við Freyjugötu. Skipulagsráð Reykjavíkurborgar telur mikilvægt að spennistöðvum sem Orkuveitan lætur setja upp í borginni séu hannaðar í samræmi við nærumhverfi. Segir í tilkynningu frá skipulagsráði að fulltrúar í ráðinu vilji sjá meiri metnað í þessum efnum og hafi ástæðu til þess að ætla að Orkuveitan muni taka því vel að endurhugsa þessi mál.

Hvað er eiginlega að núverandi spennistöðvum?  Ég er orðinn yfir mig þreyttur á öllu þessu umhverfiskjaftæði að það hálfa væri nóg.  Það má ekkert gera án þess að einhverjir finni að því í skjóli umhverfisverndar.  Ætli það endi ekki með því að það þurfi að jafna Reykjavíkurborg við jörðu og byggja allt upp á nýtt til að friður fáist.


mbl.is Meiri metnað í útlit spennistöðva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli kosti nokkuð meira að byggja falleg hús en ljót? (-:

Bragi Þór Valsson 21.10.2008 kl. 17:58

2 identicon

Var að keyra um nýtt hverfi í Kópavogi í dag og sá þar hús sem ég taldi útlitsins vegna vera dælustöð í eigu Orkuveitunnar. 

Þetta reyndist vera Lindakirkja.

101 21.10.2008 kl. 19:09

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Auðvitað kostar ekkert meira að byggja falleg hús en ljót.  Hins vegar kostar það mikla peninga að rífa allar spennistöðvar og byggja nýjar.  Bara til að þjóna einhverju umhverfiskjaftæði.

Jakob Falur Kristinsson, 22.10.2008 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband