Flokkar klofna

Allt bendir til þess að bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsókn muni klofna eftir þeirra landsfundi í lok janúar.  Ekki mun það græta mig þótt svo fari því þessir tveir flokkar bera mesta ábyrgð á því hvernig komið er fyrir íslenskri þjóð í dag.  Þessir flokkar munu ekki klofna vegna málefniságreinings, heldur vegna framapots ákveðinna aðila.  Málefni hafa alla tíð verið auka atriði hjá þessum flokkum, heldur er mest horft til þeirra manna sem komast til forustu.  Þótt ég geti ekki komið auga á hvað það ætti að vera eftirsóknarvert að verða formaður Framsóknarflokksins.  Í Sjálfstæðisflokknum ræður Geir H. Haarde ekkert við núverandi ástand og slæmt þegar forsætisráðherra þjóðarinnar er staðinn að lygi hvað eftir annað.  En Geir er vorkunn því hann er með bílstjóra í aftursætinu, sem er Davíð Oddsson og hann hefur valið þann kostinn að taka þá hagsmuni fram yfir þjóðarhag og það mun verða honum að falli fyrr eða síðar.  Báðir þessir flokkar eru börn síns tíma og stofnaðir í því þjóðfélagsástandi sem var á sínum tíma og hafa ekki náð að taka þeim breytingum eins og þjóðfélagið hefur breyst frá því að þeir voru stofnaðir.  Verður þeirra því ekki saknað þótt þeir hverfi í núverandi mynd.  Þetta eru spillingarflokkar sem vilja hygla einstaklingum á kostnað heildarinnar.  En vonandi ná landsfundir þeirra að beina þeim á rétta braut, þótt ég efi það.  Og að lokum;

Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband