Skuldir

Nú liggur það fyrir að Ísland er að verða skuldugasta land heimsins.  Hver íslendingur mun skulda4,5 milljónir.  Ég á fjögur börn og átta barnabörn og skuldum við því saman rúmar 400 milljónir, sem við getum auðvitað aldrei greitt.  Allt er þetta vegna ævintýramennsku örfárra manna, sem nú lendir á blásaklausu fólki.  Það eina sem ég get gert í stöðunni er að vona að bæði börnin mín og barnabörn verði dugleg í því að eignast mörg börn svo greiðalubyrgðin dreifist meira.  Ég verð auðvitað löngu kominn undir græna torfu þegar þessar skuldir verða greiddar að fullu.  Allt stafar þetta af spillingu og aftur spillingu og enginn er ábyrgur sinna gerða.  Því segi ég;

Burt með allt spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Ekki er nú stærðfræðin þín til að hrópa húrra fyrir - ef þú átt fjögur börn og átta barnabörn skuldið þið hjónin og afkomendur (þ.e.a.s. ef þú ert giftur, sem ég reyndar veit ekkert um) 63 milljónir, ekki 400. Fjórir og hálfur sinnum fjórtán eru  sextíu og þrír.

Milljón á hvern þingmann...

Ingvar Valgeirsson, 18.11.2008 kl. 18:22

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já ég hef reiknað þetta vitlaust og biðst afsökunar á því.  En þrátt fyrir það er nú 4,5 milljónir á hvert mannsbarn ansi mikil upphæð.  Það er grátlegt að um leið og hvert barn kemur í heiminn skuldi það 4,5 milljónir.

Jakob Falur Kristinsson, 19.11.2008 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband