Seðlabankinn

Ætla þeir aldrei að skilja þessi bankastjórar í Seðlabankanum að þeir eiga að koma sér í burtu úr bankanum.  Hvaða tilgangi þjóna bréfaskriftir þessara manna til forsætisráðherra.  Telja þessir menn að þeir séu ómissandi og ekki sé hægt að breyta neinu varðandi þennan banka nema því sem þeir vilja.  Þessi bréfaskipt sýna best hversu óhæfir þessir menn eru og ættu þeir að hafa rænu á að koma sér úr bankanum sem fyrst.  Eða vilja þeir bíða eftir að verða leiddir út í járnum og verða sér til ævarandi skammar?
mbl.is Furðar sig á vinnubrögðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

held þeir séu nú kanski ekki óhæfir - en núna verðum við að nýta krafta okkar fyrir fjölskyldur í landinu - látum þessa kauða bíða - ræðum við þá þegar brínum verkefnum er lokið

Jón Snæbjörnsson, 24.2.2009 kl. 16:34

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Auðvitað eru þeir óhæfir og engin ástæða með að láta það bíða að þeir fari úr bankanum.  Þeir eru að þvælast fyrir að hægt sé að gera nauðsynlega hluti.

Jakob Falur Kristinsson, 24.2.2009 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband