Baugur Group

Stefán Hilmarsson kemur til fundarins.Stjórnendur Baugs Group gengu á fimmtudaginn sl. frá samningi um samstarf við dótturfélag Baugs í Bretlandi, BG Holding, sem nú er stýrt af PricewaterhouseCoopers (PwC) að sögn Stefáns H. Hilmarssonar, fjármálastjóra Baugs. PwC hefur stýrt BG Holding frá því að beiðni Landsbankans um greiðslustöðvun BG Holding var samþykkt fyrir breskum dómstólum.

Sama er mér hvað verður um erlenda starfsemi Baugs.  Hitt yrði öllu alvarlegra ef starfsemin á Íslandi stöðvast.  Mér er nákvæmlega sama um allt viðskiptasiðferði, snekkjur og einkaþotur og háan lífsstandar stjórnenda Baugs.  Bara að Bónus og Hagkaup verði rekin áfram.  Því staðreyndin er sú að engir kjarasamningar hafa bætt lífskjör á Íslandi á við Bónus, með sínu lága vöruverði.


mbl.is Með framtíð Baugs í hendi sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar

Peningarnir til að reka bílanna, þotuna, snekjuna koma frá viðskiptavinu Bónus.

Baugur Group á eingar eignir á Íslandi bara skuldir, litla 180 milljarða. ( það þarf að skera niður í heilbrigðiskefinu um 7 milljarða).

Varstu að tala um kjarabætur almenings á íslandi? Kanntu annan betri?

Ingvar

Ingvar, 1.3.2009 kl. 00:02

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Auðvitað koma peningarnir frá viðskiptavinum Bónus.  Samt finnst mér að hið lága vöruverð í Bónus vera kjarabót fyrir fólk.  Peningar geta aðeins komið frá Bónus ef hagnaður er á rekstri búðanna.  Er það glæpur að reka eitthvað með hagnaði á Íslandi í dag?

Jakob Falur Kristinsson, 1.3.2009 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband