Djúpkarfi

 Ráðgjafanefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að djúpkarfi við Ísland auk Grænlandshafs og nærliggjandi hafsvæða séu þrír líffræðilega aðgreindir stofnar. Leggur nefndin til að byggt verði á svæðastjórnun við úthlutun kvóta og að ein stjórnunareiningin verði veiðar í landgrunnshlíðum Íslands.

Þetta eru sem sagt þrír stofnar, en við höfum alltaf okkur trú um að veitt væri úr einum stofni.  Annars held ég að þetta sé sami stofninn og við erum að veiða í okkar landhelgi.  En þetta haf verið talinn sérstaklegur stofn og kallaður Djúpkarfi til að skipin fengju meiri karfakvóta.  Blekking eins og allt í þessu fáránlega kvótakerfi.


mbl.is Þrír aðskildir stofnar djúpkarfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

Viltu semsagt meina að allur karfi sem að veiðist í landhelginni sé af sama stofni ?

semsagt bæði djúpkarfi og gullkarfi ?

það er bara alls ekki rétt, og það er töluverður munur á Djúpkarfa og Gullkarfa.

Árni Sigurður Pétursson, 4.3.2009 kl. 15:31

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já ég tel að þetta sé sami stofninn, sem veiddur er í landhelginni og utan hennar.  Því að þegar leyft var á sínum tíma að veiða karfa í þessi stóru flottroll á Selvogsbanka og víðar minnkað veiði á svokölluðum úthafskarfa.  Þannig að það er samhengi þarna á milli.

Jakob Falur Kristinsson, 4.3.2009 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband