VG

Kolbrún Halldórsdóttir hafnaði í sjötta sæti, Álfheiður... Endanlega úrslit í forvali Vinstri grænna í Reykjavík liggja nú fyrir en þegar tölur voru birtar í nótt átti eftir að telja utankjörfundaatkvæði. Engar breytingar urðu á skipan sæta, Katrín Jakobsdóttir fékk flest atkvæði og Svandís næst flest. Alls kusu 1101 félagi í fimm efstu sætin í tveim kjördæmum.

Þetta eru frábær úslit fyrir konur i flokknum.  Það er því ljóst að þær Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir munu leiða lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur.  Einnig vekur athygli að af þeim tíu sem voru kjörnir eru sjö konur.  Það er nokkuð ljóst að þessir listar verða mjög sterki og VG mun fá góða útkomu í kosningunum.

    Til hamingju Katrín og Svandís


mbl.is Lokatölur komnar hjá VG í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

"Engar breytingar urðu á skipan sæta."???  Nú skil ég ekki alveg!

Auðun Gíslason, 8.3.2009 kl. 15:40

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jú það er vissulega breyting því það eru sex nýir frambjóðendur á listum VG í Reykjavík.

Jakob Falur Kristinsson, 8.3.2009 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband