Dómur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 21 árs gamla konu í 6 ára fangelsi fyrir fjölda brota, þar á meðal skjalafals, þjófnað og fíkniefnabrot. Konan rauf skilorðs eldri dóms, sem hún hlaut fyrir þjófnað.

Hún kemur sjálfsagt sem ný og betri manneskja úr fangelsinu.  Þetta hefur kannski verið einn af svokölluðum "góð kunningjum" lögreglunnar, eins og lögreglan segir svo oft.

Ég held að lögreglan ætti að leita sér að betri kunningjum en þeim sem alltaf eru í afbrotum.


mbl.is Dæmd í hálfs árs fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessuð konan fær sex ára dóm fyrir þjófnað upp á nokkurhundruðþúsund, fyrir að keyra án ökuréttinda og hafa anfetamín í fórum sínum. Hvað ætli bankastjórar og eigendur Landsbankans fái þá mörg ár fyrir að ræna hundruðum miljarða frá íslenskum skattgreiðendum? Spyr sá sem ekki veit.

GH 31.3.2009 kl. 11:07

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er sagt að ef þú stelur þúsund krónum, þá er það þitt vandamál.  En ef þú stelur nokkrum milljörðum, þá er það vandamál þess sem stolið var frá.  Þetta er að sannast með bankastjórana.

Jakob Falur Kristinsson, 31.3.2009 kl. 11:11

3 identicon

http://domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=S200801794&Domur=2&type=1&Serial=1&Words=

 Auðvitað er þetta villa hjá blaðamannabjánunum. 6 mánuðir er dómurinn sem konan fékk.

Sigurgeir 31.3.2009 kl. 11:23

4 identicon

Ég bendi ykkur á að lesa dóminn á www.domstolar.is og skammist svo út í blaðamenn MBL frekar en lögregluna og dómskerfið á Íslandi. Það er betra að vera með staðreyndir á hreinu.

Lárus Dór Christiansen 31.3.2009 kl. 11:26

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég get á engan hátt borið ábyrgð á prentvillu í Morgunblaðinu og er ekki að skammast út í einn né neinn.

Jakob Falur Kristinsson, 31.3.2009 kl. 16:20

6 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég var að lesa dóminn og verð nú að viðurkenna að 6 mánuðir eru ekki mikið fyrir það sem þessi kona gerði.

Jakob Falur Kristinsson, 31.3.2009 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband