Skógrækt

Trönum í fiskihjalla hlaðið á bíl á Hallormsstað haustið 2005. Skógrækt og nýting auðlindarinnar hefur nokkuð verið til umræðu á síðustu mánuðum og eftirspurn eftir afurðum hefur aukist eftir bankahrunið.

Það er ekki mjög langt í að við getum farið að nýta okkar skóga og framleiða okkar eigin við.  En við verðum að gæta þess að ganga ekki of langt í þeim efnum.  Við eigum að setja okkur það markmið að fyrir hvert tré sem við fellum gróðursetjum við tvær plöntur.  Þannig byggjum við upp samhliða nýtingu skóganna.


mbl.is Hvenær getum við farið að nýta þessa skóga?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já Jakob það er rétt en það þarf nú gott betur en tvær plöntur fyrir hvert tré, 100 plöntur væru nærri lagi. Á Ísl. er ca 2,5% af landi skógi vaxið sem er afar lítið og hefur tekið langann tíma að ná þó því. Sem dæmi má nefna að ca 11% af Danmörku er nú skógur en í kringum 1820 var ca 2,5% skógur þar en skógrækt hefur verið í miklu átaki þar í því litla landi síðan þá.

Þetta er merkileg tilvitnun í Þröst Eysteinsson að hann segi að aðeins 5-10% af landinu þurfi að vera skógi vaxið til að sporna við innflutningi... menn þurfa að átta sig á að það er himinn og haf á milli þessara 5-10 prósenta sem hann er að nefna. Það hefur tekið okkur ca. 50 ár að komast úr 2% í 2,5% :)

Einar 26.4.2009 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband