Ástþór

Ástþór Magnússon, talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar, kaus í... „Lýðræðishreyfingin lætur ekki bjóða sér að mæta aftur í sjónvarpsumræður sem rammaðar eru inn af vitringum RÚV sem fundnir eru m.a. úr prófkjörum Sjálfstæðisflokksins,“ segir Ástþór Magnússon, talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar. Hann er illur yfir umræðum leiðtoga flokkanna í RÚV í gærkvöld og segir útilokað að mæta aftur hjá RÚV við þessar kosningar. Venja er að leiðtogar allra flokka séu í sjónvarpssal þegar fyrstu tölur eru birtar að kvöldi kjördags.

Það er óhætt að segja að það gusti um þar sem Ástþór er.  Hann er það sem ég kalla;

Skemmtilegur. Ofviti


mbl.is Ástþór illur út í RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Himmalingur

Ekki mundi ég taka svo djúpt í árinni að kalla hann vitleysing, en á stundum (frekar oft) er karlinn ansi tæpur!

Himmalingur, 25.4.2009 kl. 11:36

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei það er of djúpt í árina tekið því Ástþór er ekki vitleysingur.  Heldur er maðurinn mjög vel gefinn og sennilega er hann bara á undan sinni samtíð.

Jakob Falur Kristinsson, 25.4.2009 kl. 15:40

3 identicon

Já sennilega er Ástþór á undan sinni samtíð. Hans tími er bara ekki kominn. En tími kominn á aðra sem skilja ekki sinn vitjunartíma.

Egill Þorfinnsson 25.4.2009 kl. 17:30

4 identicon

Við skulum kjósa Ástþór rétt fyrir áramótin — sem mann ársins!

Þorgils Hlynur Þorbergsson 25.4.2009 kl. 17:36

5 identicon

Ég vil líka minna á forsetakosningarnar 2012. Við þurfum þá ekki að fá aðkeypt skemmtiefni í opinberar veislur embættisins.

Egill Þorfinnsson 25.4.2009 kl. 17:52

6 identicon

Við eigum að fá Ástþór í stól forseta Alþingis.

Ekkert helvítis málþóf eða froðu.

Viðar Ingvason 1.5.2009 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband