Mótmæli

Það er ekki annað hægt en að viðurkenna að Frakkar eru snillingar í mótmælum.  Nú er ástæðan lækkandi verð á mjólk til bænda í ESB.  Svo eru íslenskir bændur hræddir um sinn hag ef við göngum í ESB.  Þeir ættu að vera áhyggulausir nú, vitandi um mikinn stuðning við bændur í ESB.  Því nú þegar er búið að skipa tvo sáttasemjara til að mæta kröfum franskra bænda.
mbl.is Franskir bændur mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður

Ég get ekki hugsað mér að afsala sjálfstæði Íslendinga sem forfeður og formæður okkar börðust fyrir en talað er um að sjálfstæðisvitund okkar hafi vaknað þegar allt var á hverfandi hveli í Frakklandi fyrir tveimur öldum síðan????

Vertu Guði falinn

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 19.5.2009 kl. 18:12

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Við erum ekkert að afsala okkur sjálfstæði með aðild að ESB Þetta eru samtök fullvalda og sjálfstæðra þjóða.  Eða eru t.d. Þýskaland, Bretland, Spánn, Ítalía ofl. ekki sjálfstæð ríki.

Jakob Falur Kristinsson, 20.5.2009 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband