Borgarahreyfingin

Nú hefur stjórn Borgarahreyfingarinnar sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar ríkisútvarpsins í dag um mikinn átaka fund samtakanna í gær.  En fréttin var um mikil átök á fundi Borgarahreyfingarinnar, þar sem deilt hefði verið um völd og peninga.  Segja samtökin að lítið sé um völd og peninga hjá Borgarahreyfingunni.  Aðeins hafi verið rætt um ráðningu framkvæmdastjóra þingflokksins og um það hafi verið mjög skiptar skoðanir.  En er ekki deilan um þennan framkvæmdastjóra, deila um völd og peninga.  Annars hélt ég að það væri enginn formleg stjórn í þessum samtökum.
mbl.is Lítið um völd og ekkert af peningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Borgarahreyfingin á hreinlega bara enga peninga, þannig er nú það og því ekkert til að rífast um þar.

Meira að segja sumir þingmenn hreyfingarinnar eru enn á atvinnuleysisbótum og því ekki einu sinni peningar þar :D

Valdastrúktúrinn er líka svo dreifður að það eru engin raunveruleg völd heldur...

Erfitt að rífast um það...

Baldvin Björgvinsson, 25.5.2009 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband