Árás

Ráðist var á ungan mann í Jafnaseli í Breiðholti í fyrrakvöld. Árásarmennirnir voru tveir og töldu sjónarvottar sig sjá hnífi beitt í átökunum. Var því mikill viðbúnaður vegna málsins. Meintur hnífur fannst þó aldrei.

Mér finnst fyrirsögn Morgunblaðsins sérkennileg.  Hvað til gangi þjónar að nefna Breiðholt í þessu sambandi.  Ég veit ekki betur en að í Breiðholti búi gott og heiðarlegt fólk.  En þessi fyrirsögn er til þess fallin að sverta Breiðholt, sem hverfi og er það miður.  Þetta minnir óneitanlega á fréttaflutning víða af landsbyggðinni, þegar þar eru framin lögbrot.  Þá var oft tekið sérstaklega fram að um aðkomumenn hefði verið að ræða.  Það sama á við þegar erlendir menn brjóta af sér, þá er alltaf tilgreint frá hvaða landi viðkomandi eru.  Þannig er verið að sverta heilu hópana af fólki sem er blásaklaust.  Það kemur hvergi fram í fréttinni að árásarmennirnir búi í Breiðholti, aðeins að árásin átti sér þar stað.  Hefði ekki verið nær að nafngreina árásarmennina og segja frá því hvar þeir búa.


mbl.is Árás í Breiðholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarna er é algjörlega sammála, hvar búa þessir menn og hvað er þetta lið að ganga laust,   því er það ekki lokað inni vegna glæp þess sem þeir framkvæmdu á Seltjarnarnesi.Bófi

það er alveg ótrúlegt að þeir ganga lausir,  fríir til að halda glæpastarfsemi sinni áfram

Kristín 31.8.2009 kl. 13:17

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er alveg ótrúlegt hvað dæmdir glæpamenn fá að ganga lengi lausir, eftir að hafa hlotið dóm.

Jakob Falur Kristinsson, 1.9.2009 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband