Danmörk

Ný skoðanakönnun í Danmörku sýnir að nær helmingur Dana á aldrinum 18-25 ára vill að skilið verði milli ríkis og kirkju, segir í Jyllandsposten. Aðeins 35% vilja halda í þjóðkirkjuskipulagið. Blaðið vitnar í nokkra biskupa sem segja það aðeins tímaspursmál hvenær skilið verði á milli.

Auðvit á að skilja þarna á milli og eins á Íslandi.  Ríkisvaldið í hverju landi á ekki að vera að vasast í trúmálum fólks.  Þetta er að vísu mjög þekkt í löndum múslima en það er nú ekki til fyrirmyndar.


mbl.is Kirkja og ríki aðskilin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: caid

Síðast þegar ég vissi, þá var ríki og kirkja ekki aðskilið á Íslandi.

caid, 12.9.2009 kl. 10:58

2 identicon

Nei kirkjan er ekki aðskilin frá ríkinu á Íslandi sem er óréttvíst og það á að vera trúfrelsi á 'islandi. Hversu mikið gæti ríkið SPARAÐ á ári ef kirkjan myndi borga laun presta sjálf, ég trúi ekki á álfa eða eitthvað álika hócuspócus en er skildaður að borga laun presta ef ég væri búsettur á skerinu en nu erég ekki það sem betur fer...

Jóhannes 12.9.2009 kl. 11:40

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er alveg rétt að á Íslandi eru ríki og kirkja ekki aðskilin, sem brýtur í bága við trúfrelsi samkvæmt stjórnarskránni.  Enda erum við sérstakan kirkjumálaráðherra.  Hinsvegar er ekki öruggt að ríkið myndi spara miklar upphæðir, því þjóðkirkjan á svo mikið af jörðum, sem ríkið notar og leigir út.

Jakob Falur Kristinsson, 13.9.2009 kl. 00:06

4 identicon

Svona getur það endað ef maður trúir of mikið  http://www.aftonbladet.se/nyheter/article5782883.ab

Jóhannes 13.9.2009 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband