KSÍ

Femínistafélag Íslands, Samtök um Kvennaathvarf og Stígamót fordæma niðurstöður af stjórnarfundi KSÍ fyrir helgi. Það er óásættanlegt að stjórnin víki ekki eftir að upp komst um vítavert framferði fjármálastjóra KSÍ og máttleysisleg viðbrögð stjórnarinnar í kjölfarið, að því er segir í yfirlýsingu frá samtökunum.

Hvaða voðalegu læti eru útaf saklausri heimsókn fjármálastjóra KSÍ á súlustað í Sviss.  Manngreyið villtist óvart inn á þennan stað og gat ekki grunað hvað þar færi fram og til viðbótar var hann svo óheppinn að nota óvart greiðslukort frá KSÍ, en út af því munu óheiðarlegir menn tekið um átta milljónir, sem maðurinn er fyrir löngu búinn að endurgreiða KSÍ.

Ég sé ekki hvernig hægt er að tengja þetta við mannsal hér á landi og finnst femínistar ganga ansi langt í þeirri tengingu.  Það sem þarna átti sér stað var bara röð óhappa og nú vilja femínistar að maðurinn sem var nánast rændur um átta milljónir, missi síðan vinnuna í þokkabót. 

Hann á alla mína samúð þessi fjármálastjóri.


mbl.is Fordæma niðurstöðu stjórnar KSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Þór Kristjánsson

Þetta voru 3 milljónir, 8 milljónir eru afbökun fréttamanna sem leyfa sér að reikna á núverandi gengi til að gera fréttina meira bitastæðari. En rétt skal vera rétt.

Davíð Þór Kristjánsson, 23.11.2009 kl. 13:45

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er rétt að þetta voru ekki nema 3 milljónir en fréttamenn hafa verið að reikna þetta á gengi dagsins, sem fréttin er skrifuð.

Jakob Falur Kristinsson, 24.11.2009 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband