Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Spakmæli dagsins

Sóaðu ekki nýjum tárum

á gamlar sorgir.

(Evrípides)


Slasaður drengur

Alltaf setur að mér hroll við svona fréttir, því þótt viðkomandi lifi þetta af, þá getur hann samt þurft að bera varanlegan skaða alla sína ævi.
mbl.is Drengur alvarlega slasaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekinn á 172 km. hraða

Ökumaður um tvítugt var tekinn á 172 km. hraða á Reykjanesbrautinni í morgun.  Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum og verður væntanlega ákærður og fær þá sekt til viðbótar.

Annars er ég á þeirri skoðun að þar sem nú er búið að tvöfalda Reykjanesbrautina með tveimur aðskildum akreinum í hvora átt væri góð leið til að draga þarna úr hraðakstri að hækka hámarkshraðann úr 90 km. í 120 km.  Það er alla veganna reynsla Dana af slíkum aðgerðum.


mbl.is Tekinn á 172 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumaverðið

Nú segja fulltrúar olíuríkja að nauðsynlegt sé að tryggja stöðugleika á olíu, draumaverðið fyrir fatið sé 60-70 dollarar.  Það ætti að koma okkur íslendingum til góða því það er forsenda fyrir leit og vinnslu olíu á Drekasvæðinu að verðið sé ekki lægra en 50 dollarar fyrir fatið.
mbl.is „Draumaverðið“ 60-70 dollarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vsaþjófur

Nú hefur íslenskur vasaþjófur verið handtekinn í Stafangri í Noregi.  Ég hélt að íslendingar kynnu ekki þessa list sem vasaþjófnaður er.  En sjálfsagt hafa menn lært þetta í allri útrásinni.
mbl.is Íslenskur vasaþjófur í Stafangri?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Símastaur

Flest verður nú mönnum til ama.  Nú er það símastaur í Norðurþingi sem verður að fjarlægja.  En til hvers, einhverju hlutverki hefur hann gengt þessi staur.  Varla hefur hann verið settur upp til skrauts.
mbl.is Verða að fjarlægja símastaur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byssuleyfi

Alveg er ég sammála því að strangar reglur gildi um byssuleyfi.  Það eru alltof mörg dæmi þess erlendis að hálfbrjálað fólk sér að drepa fjölda manns án nokkurra ástæðu.  Eins og hefur skeð í skólum í Bandaríkjunum og Bretlandi og víðar.
mbl.is Reglusemi skilyrði skotvopnaleyfis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrefnuveiðar

Þá eru nú loksins að hefjast hrefnuveiðar, en ekki er kvótinn stór aðeins 100 hrefnur, sem skiptast á þrjá aðila.  Þessar tafir á að hægt væri að byrja veiðar hefur valdið því að vinnslustöð, sem setja átti upp á Akranesi og hefði veitt þó nokkrum vinnu verður ekki að veruleika á þessu ári vegna óvissu um framhald á næsta ári.
mbl.is Hrefnuveiðar að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanskilaskráin

Nú munu um 20 þúsund íslendinga vera komnir á vanskilaskrá og fer mjög fjölgandi.  En þessa skrá nota bankar ofl. til viðmiðunar um hvort viðkomandi geti fengið lán í banka, gistingu á hóteli, kreditkort ofl.  Því er spáð að í lok þessa árs verði komnir á þessa skrá um 50 þúsund manns, sem þar með er útilokað frá mörgu nauðsynlegum hlutum.  Nú vaknar sú spurning hverjum bankarnir ætla að lána í framtíðinni þegar hátt í 20% þjóðarinnar eru á vanskilaskrá.  Margir telja að þetta geti snúist upp í andhverfu sína og ekki verði hægt að notast við þessa skrá og þá hætti fólk að greiða sína reikninga með tilheyrandi keðjuverkunum.

Nú verður ríkið um leið og bankarnir nýju verða starfshæfir að hreinsa alla af þessari skrá ef ekki allt á að hrynja aftur.


Vandi heimilanna

Hann er stór vandinn sem heimili þessa lands standa frami fyrir og það virðist ekkert eiga að gera þeim til bjargar.  Það er búið að búa til svokallaða greiðsluaðlögun, en hún er ansi flókin.  Til að fara í greiðsluaðlögun þarf fólk að leita til héraðsdómara sem tekur ákvörðun hvort viðkomandi gagnist sú leið ef ekki þá á sá sami að lýsa sig strax gjaldþrota.  Ef greiðsluaðlögun er samþykkt skipar tómar tilsjónarmann fyrir viðkomandi aðila eins og um þrotabú sé að ræða.  Þessi tilsjónarmaður hefur alræðisvald yfir fjármálum viðkomandi fjölskyldu.  Hann ákveður einkaneysluna og gerir áætlun um greiðslu skulda.  Þær áætlanir leggur hann síðan fyrir dómara og ef dómarinn samþykkir þær er boðað til fundar með lánadrottnum og samið um niðurfellingu skulda að því marki sem gert er ráð fyrir í áætlun tilsjónarmannsins.  Þetta ferli er áætlað að geti tekið allt að 5 árum.  En þá komum við að mannlega þættinum.  Hvaða fjölskylda kærir sig um að hafa lögfræðing inn á heimili sínu í 5 ár, sem ákveður hvað skal kaupa í matinn, hvort börnin eigi að fá ný föt og allt það sem venjuleg fjölskylda gerir.  Þetta eykur auðvitað atvinnu í landinu því mörg hundruð lögfræðingar fá þarna létt og auðveld störf í boði ríkisins.  Önnur leið sem boðið er upp á er að lengja öll lán til 80-100 ára, en hver kærir sig um að ætla að láta barnabörn sín greiða sínar skuldir.  Þeir eru örugglega mjög fáir ef nokkrir.

Þannig að úrræði ríkisstjórnarinnar til að bjarga heimilum þessa lands er ekkert nema rugl.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband