Bíður dauðans

Gæsluvarðhald yfir Brasilíumanninum Hosmany Ramos var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær framlengt um hálfan mánuð, eða til 2. febrúar nk. Ramos er sannfærður um að sín bíði aðeins dauðinn, verði hann framseldur til Brasilíu.

Þessi maður verður ekki drepinn strax eða á meðan fjölmiðlar hafa áhuga á hans máli, en þegar frá líður minnkar sá áhugi og þá fyrst verður hann drepinn.  Það er algengt í fangelsum í Brasilíu að föngum sem á að drepa sé gefið eitur til að drepa þá.


mbl.is Dauðinn bíður í ómannúðlegu fangelsi í Brasilíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórarinn Þórarinsson

Skil ekki alveg færsluna hjá þér Jakob, aðeins styttri útgáfa af fréttinni sjálfri :)

En ég skil heldur ekki afhverju þessi maður er enn á landinu, man ekki betur en að hann hafi gerst sekur um það fyrir nokkrum vikum að ráðast að lögreglumanni með ydduðu skrúfjárni og gert tilraun til þess að flýja úr gæsluvarðhaldi. Þetta er eftirlýstur morðingi og á ekki að fá að gista í lúxusfangelsum á Íslandi vegna þess að hann þorir ekki heim til sín þar sem hann á að taka ábyrgð á gjörðum sínum.....

Þórarinn Þórarinsson, 20.1.2010 kl. 11:19

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Og hvað viltu gera eitthvað í málinu?  Ditto við komment Þórarins. :)  kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 20.1.2010 kl. 12:35

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það á auðvitað að vísa honum úr landi, sem fyrst.

Jakob Falur Kristinsson, 21.1.2010 kl. 09:52

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Ekki seinna en strax  kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 22.1.2010 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband