Lítið marktækar skoðanakannanir

Það má ekki hafa oftrú á skoðanakönnunum eins og sumir virðast gera.  Frjálslyndi Flokkurinn sker sig talsvert úr varðandi svona kannanir.  Ástæðan er ósköp einföld, kjarninn í fylgi flokksins eru sjómenn og taka af augljósum ástæðum ekki þátt í þessum könnunum vegna þess að þeir eru svo mikið að heiman vegna sinna starfa.  Könnunin sem var gerð í Norðvesturkjördæmi fyrir Stöð 2 sýnir þetta mjög skýrt og sama á við um hin kjördæmin.  En sjómennirnir nýta sinn kosningarétt svo við í flokkknum þurfum ekki að hafa miklar áhyggjur af þessu.  Það á eftir að kjósa og telja upp úr kjörkössunum og ég er hræddur um að þá eigi margir eftir að hrökkva við þegar hið raunverulega fylgi flokksins kemur í ljós.  Ég er að starfa á kosningaskrifstofu flokksins í Reykjanesbæ og við sem erum þar finnum vel hinn mikla meðbyr sem flokkurinn hefur í dag.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband