Óheiðarlega gólftuskan

Ég hef nú um ævina kynnst margri lyginni og óheiðarleika en aldrei hef ég kynnst jafn ómerkilegu fólki og nú kallast ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar.  Sl. haust stóð öll stjórnarandstaðan sameiginlega að tillögu um bætt kjör aldraðra og öryrkja og Ingibjörg Sólrún gerði mikið grín að því sem þáverandi ríkisstjórn var að gera varðandi allar þær skerðingar sem við verðum fyrir sem erum öryrkjar.  Jóhanna Sigurðardóttir flutti nánast grátklökk ræður um fátækt á Íslandi og átti varla til nógu sterk lýsingarorð um skilningsleysi stjórnvalda.  Fyrir kosningar lofaði þessi flokkur öllu fögru ef hann kæmist til valda og þeir sem verst væru settir í þjóðfélaginu ættu von á bjartri framtíð og betri tíð og allt var þetta Framsókn að kenna.  Ég var einn af þeim sem trúði að þetta aumingja fólk væri að meina það sem það var að segja og þótt ég hafi fyrir löngu sagt skilið við Framsókn, hvarflaði eitt sinn að mér að sennilega væri Samfylkingin ágætis flokkur sem vert væri að styðja en sem betur fer hætti ég við og gekk til liðs við Frjálslynda flokkinn og þakka enn í dag fyrir þá ákvörðun mína því að þar er þó í forustu heiðarlegt fólk sem segir sína skoðun og stendur við hana.  Ég reyndi fyrir síðustu kosningar að kynna mér hvað stefnu Samfylkingin hefði í hinum ýmsu málum og ekki vantaði stóru yfirlýsingarnar og loforðin sem í dag er komið í ljós að allt var tóm lygi og blekkingar.  Jón Baldvin sagði í vor í þættinum Silfri Egils að Samfylkingunni hefði mistekist allt sem hún var stofnuð til að gera og eru þau orð hans nú rækilega komin í ljós.  Ingibjörgg Sólrún flutti þrumandi ræður um turnana tvo sem yrðu í íslenskum stjórnmálum þ.e. Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin og höfuðandstæðingur Samfylkingarinnar vari Sjálfstæðisflokkurinn.  En hvað skeður eftir kosningar, þá var Sjálfstæðisflokkurinn búinn að fá nóg af því að nota Framsókn sem gólftusku og vantaði nýja og þá var Samfylkingin tilbúinn að taka við hlutverki Framsóknar og tilbúinn að gleypa öll kosningaloforðin, eingöngu horft á ráðherrastóla og til að koma öllum að var einu ráðuneyti skipt í tvö þrátt fyrir að þessi flokkur boðaði áður fækkun ráðuneyta.  Þegar félagsmálaráðherra Framsóknar lækkaði lánshlutfall Íbúðalánasjóðs fór Jóhanna Sigurðardóttir hamförum á heimasíðu sinni í gagnrýni sinni á þessari ákvörðun en hvað skeður svo þegar Jóhanna er orðin félagsmálaráðherra tekur hún sömu ákvörðun og þegar hún er mynnt á fyrri yfirlýsingar sínar eru svörin þau að þetta sé gert allt öðru vísi núna og aðstæður allt aðrar og bla, bla, bla.  Það er rétt hjá Jóhönnu að þetta er öðruvísi núna að því leiti að það er Jóhanna Sigurðardóttir sem tekur ákvörðunina en ekki Magnús Stefánsson, annað hefur ekki breyst.  Svo kom að því að bæta kjör aldraðra og öryrkja og hver var niðurstaðan, ákveðið var að þeir sem væru orðnir 70 ára mættu vinna eins og þeir gætu á þess að bætur skertust, aðrir fengu enga leiðréttingu á sínum málum.  Ég bar spyr aflverju að miða við 70 ára aldur ef ekki var hægt að ganga lengra mátti alveg eins miða við 100 ára aldur.  Nú er samfylkingin orðin gólftuska hjá Sjálfstæðisflokknum og fær engu ráðið og þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar um að þau yrðu að komast í ríkisstjórn til að hafa áhrif.  En hver eru áhrif Samfylkingarinnar í núverandi ríkisstjórn, þau eru enginn og verða enginn það eina sem Ingibjörg Sólrún hefur haft upp úr þessu brölti sínu að hún fékk þann vafasama heiður að Hannes Hólmsteinn hældi henni sem stjórnmálamanni og segir það allt sem segja þarf um hvar hún stendur gagnvart Sjálfstæðisflokknum.  Eini munurinn á núverandi ríkisstjórn og þeirri fyrri að innan raða Samfylkingarinnar er varla hægt að finna heiðarlega stjórnmálamenn, en þá mátti þó finna slíkt hjá Framsókn.  Kalli prestur fór um Vestfirði og Snæfellsnes fyrir kosningar og predikaði um galla núverandi kvótakerfis og endurskoða yrði það allt frá grunni og þegar Samfylkingin var komin í stjórn fékk hann sæti í sjávarútvegsnefnd og mér er sagt að þegar nefndin var á dögunum að fjalla um hinn mikla niðurskurð á þorskvótanum hafi Karl Matthíasson prestur einu sinni sagt jæja og gleymdi að segja amen.  Ekki vildi ég vera í sporum þingmanna Samfylkingarinnar í næstu kosningum, því hætt er við miklu hruni ef ekkert fer að bóla á að Samfylkingin hafi einhver áhrif í þessari ríkisstjórn.  Ég get vorkennt Jóhönnu Sigurðardóttur að þurfa að sitja í þessari stjórn, því hún hafði það orð á sér að vilja berjast fyrir þá sem minna meiga sín í þessu þjóðfélagi en nú er að koma á daginn að hún hefur ekkert meint með því sem hún hefur verið að tala um.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ekki varstu svo barnalegur Jakob, að halda að Sjálfstæðisflokkurinn keypti alla stefnu Samfylkingar á einum mánuði, nei andskotinn.

Þetta er eins og hjá Grími áttunda úr Eyjum í gær, hvar kallað var með látum eftir göngum, höfn eða bara einhverju frá Robert Marshall aðstoðarmanni samgönguráðherra??? Þessi sami "áttundi" er búinn að eiga samgönguráðherra í formi Sturlu í einhver 8 ár og ekkert slitið útúr honum??? Það er hreinlega með ólíkindum hvernig hægt er að leggja hlutina upp.

Mitt álit á heilagri Jóhönnu hefur hinsvegar ekkert breyst og ég er nokkuð viss um að þú átt ekki marga betri málsvara í baslinu.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 11.7.2007 kl. 10:53

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei Hafsteinn ég bar ekki svo barnalegur að halda að Sjálfstæðisflokkurinn gleypti alla stefnu Samfylkingar og gerði mér fulla grein fyrir að þeir voru bara að leita að nýrri gólftusku í stað Framsóknar.  Hinsvegar er ég þannig gerður að ég ætlast til þess af stjórnmálmönnum og öðrum að þeir standi við orð sín, en séu ekki með fullyrðingar og loforð sem þeir vita um leið og þeir láta slíkt frá sér að er tóm lygi og rugl.   Ég held að heilög Jóhanna verði seint minn málsvari í mínu basli sem öryrki, því miðað við það sem hún hefur gert til þessa verð ég að bíða í 23 ár en þá verð ég 70 ára og ef ég verð þá á lífi munu þær aðgerðir sem hún hefur gert hingað til koma mér til góða, en ég efast um að hún verði ráðherra þá.  Ég geri mér alveg grein fyrir því að í samsteypustjórn þarf að miðla málum en þegar um er að ræða tvo flokka er undarlegt að annar verði að svíkja öll sín kosningaloforð.

Ég hélt að Marshall-aðstoðin hefði verið eftir seinni heimsstyrjöld og væri liðin tíð svo menn ættu að fara varlega í væntingar um slíka aðstoð nú.

Jakob Falur Kristinsson, 11.7.2007 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband