Mbl. og LÍÚ

í leiðara Morgunblaðsins 3. júlí er fjallað um afstöðu LÍÚ til tillögu Hafró um að minnka þorskvótann um rúm 30% og einnig kemur fram að þörf sé á endurskoðun á kvótakerfinu og lýst yfir stuðningi við að verja hin minni byggðalög.  Leiðarann í heild sinni má lesa hér fyrir neðan en þetta er mjög áhugaverð skrif.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þessi skrif í Morgunblaðinu eru aðeins skoðanir eins manns,þess sem skrifar.Þar fyrir utan eru þau nafnlaus og hafa þessvegna ekkert gildi frekar en nafnlaus sóða og áróðursskrif sem birtast á bloggsíðum.Þau eru þó verri en slík skrif að ekki er hægt að rekja þau til þess sem skrifar.Eigendur blaðsins bera að sjálfsögðu siðferðilega ábyrgð á verkum þeirra manna sem vinna fyrir þá, og hvort þeir komast upp með það að fela sig í skjóli nafnleyndar.Þessi nafnlausu skrif voru í eina tíð kölluð Moggalýgi og hafa það viðurnefni enn í dag .

Sigurgeir Jónsson, 30.9.2007 kl. 10:45

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er nú svo augljóst að sá sem ber ábyrgð á leiraskrifum hvers blaðs er ritstjórinn og ef hann skrifar hann ekki sjálfur er sett nafn höfundar undir.  Þannig að þessi skrif eru alls ekki nafnlaus og flestir vita hver skrifar en sá maður heitir Styrmir Gunnarsson.  Ef þú trúir þessu ekki Sigurgeir getur þú farið inná mbl.blog.is og þar koma allir leiðarar blaðsins og undir sumum er nafn og öðrum ekki því alla nafnlausa leiðara skrifar Styrmir.  Ef þú ert ekki sammála leiðurum Mbl. ættir þú að láta þína skoðun í ljós á réttum stað en við hvern leiðara er lesendum gefin kostur á að koma með sínar athugasemdir.

Jakob Falur Kristinsson, 30.9.2007 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband