Frjálslyndi flokkurinn

Mikið var það ánægjulegar fréttir sem komu frá mínum góða flokki 28. september sl. að búið væri að ráð Magnús Reynir Guðmundsson sem framkvæmdastjóra flokksins, en hann hefur gengt starfinu tímabundið síðan Margrét Sverrisdóttir hætti.  Magnús Reynir hefur mikla reynslu bæði úr stjórnmálum og viðskiptum og allir sem honum kynnast hitta þar fyrir góðan dreng og traustan mann.  Fyrir stuttu síðan reyndu andstæðingar flokksins að blása upp ósætti í flokknum og fullyrt var að Sigurjóni Þórðarsyni hefði verið lofað þessari stöðu og þau kynni sem ég hef haft af þeim ágæta manni Sigurjóni Þórðarsyni eru slík að ég var alltaf viss um að hann vildi ekki efna til einhvers ófriðar innan flokksins.  Því að í dag bendir allt til að þess verði ekki langt að bíða að Sigurjón verði þingmaður á ný.  Einnig kom fram í áðurnefndri frétt að Magnús Þór Hafsteinsson hefði verið ráðinn í hlutastarf hjá okkar þingflokki.  Ég er viss um að þessi ráðning á eftir að skila sér í auknu fylgi við flokkinn og gera flokkinn öflugri í núverandi stjórnarandstöðu

Til hamingju Magnús Reynir og Magnús Þór og ekki síst flokkurinn sjálfur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband