Sundabraut

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að 1530 milljóna króna framlagi, sem fyrirhugað var til Sundabrautar á næst ári, verði frestað.

Ég segi nú bara er ekki allt í lagi með þessa menn sem þessu ráða.  Þegar á sama tíma er verið að skipuleggja mestu hreppaflutninga Íslandssögunnar með því að flytja 20 þúsund manns af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið.  Hvernig á aumingja fólkið að komast inná svæðið?  Verður það að koma sjóleiðina? Eða jafnvel gangandi?  Hvers konar andskotans vitleysa er þetta allt að verða.

Ég spyr að lokum er þetta allt í lagi Sturla, forseti ?


mbl.is Ekki gert ráð fyrir framkvæmdum við Sundabraut á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarf Sundabraut til að flytja fólk TIL Reykjavíkur?  Er nú ekki markmiðið með Sundabraut, að hún verði notuð oftar en einu sinni?

E 1.10.2007 kl. 17:45

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ef þú hefur fylgst með E-IP-tala eitthvað, þá er lagning Sundabrautar til þess að auðvelda fólki að aka inn til Reykjavíkur, því núverandi leið ber ekki allan þann umferðarþunga sem er á núverandi leið til Reykjavíkur.  Auðvitað verður Sundabraut ekki einnota vegur ég hef aldrei haldið því fram.  Ég veit ekki afhverju þú ert með svona útúrsnúninga og finnst allur málflutningur þeirra sem ekki þora að skrifa athugasemdir við annarra skrif, nema undir dulnefni vera ómerkilegt blaður og segir bara eitt að viðkomandi er aumingi sem treystir sér ekki til að standa við það sem hann er að skrifa og notar því dulnefni.  Þú hefur áður verið með athugasemdir við mín skrif og ef þú þorir ekki að birta þitt rétta nafn, bið ég þig vinsamlega að hætta að skrifa á mína síðu.

Jakob Falur Kristinsson, 1.10.2007 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband