Dorrit Moussaieff forsetafrú

 

Hvernig er eiginlega með þetta aumingja DV, eru menn þar á bæ svo gjörsamlega óhæfir til að skrifa frétti og greinar í blaðið til að það seljist?  Á ég að trúa því að þessir fuglar telji svona skrif vera eitthvað sem fólk hefur áhuga á að lesa?  Að leggjast svo lágt að skrifa frétt um forsetafrú Íslands sem virðist vera tóm lygi er full mikið af því góða og þessir menn ættu að skammast sín.  Ég var einu sinni áskrifandi að þessu blaði en sagði því upp vegna þess að mér líkað ekki hvernig þetta blað er skrifað.  Þessu blaði bættist nýlega liðsauki þegar Reynir Traustason var ráðinn sem ritstjóri við hlið Sigurjóns M. Egilssonar og ekki virðist það hafa haft áhrif á blaðið til hins betra nema síður sé.  Ég held að þeir félagar ættu að halda sig þar sem þeir virðast kunna best við sig, en það er að skríða um í holræsum í leit að einhverjum óþverra til að bera upp á saklaust fólk.


mbl.is Dorrit segir frétt DV móðgandi og særandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Ja hérna Kobbi !

Níels A. Ársælsson., 8.10.2007 kl. 18:50

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

100 % sammála, DV er lítið annað en sorprit.  Ef Reynir Traustason myndi gera úttekt á sjálfum sér og sinni framgöngu (t.d í kvótamálum) kæmi margt í ljós, sem myndi skyggja á "flekklausa" fortíð hans, en hann forðast umfjöllun um sjálfan sig, því hvar er betra að vera en í miðri "skítakvörninni" ef menn vilja forðast umfjöllun um sjálfa sig.

Jóhann Elíasson, 9.10.2007 kl. 07:17

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skil ekkert í svona skrifum eins og þarna í DV.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.10.2007 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband