Þungur dómur

Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður í fyrirtækjarekstri, varð uppvís að því að standa ekki skil á virðisaukaskatti og afdregnum skatti greiði 8,5 milljónir króna í sekt og einnig var hálfs árs skilorðsbundinn fangelsisdómur staðfestur.

Var manngreyið bara ekki að reyna að bjarga eigin rekstri og fékk þetta bara lánað um tíma hjá ríkinu.  Annars eiga menn ekki að greiða svona sektir, heldur sitja það af sér í fangelsi.  Ég fékk á sínum tíma svona dóm eða 4 milljónir í sekt og tveggja ára skilorðsbundið fangelsi og ef dómurinn var ekki greiddu inn 4 vikna átti ég að sitja inni í 3 mánuði.  Til að borga 4 milljónir þurfti ég að hafa á milli 7 og 8 milljónir í tekjur og auðvitað datt mér ekki í hug að borga heldur fór í fangelsi í 3 mánuði og reiknaðist til að ég hefði í raun haft rúmar tvær milljónir í laun á meðan og hef aldrei á ævinni haft eins góðar tekjur.  Auk þess að vera í fríu fæði og húsnæði og fá meiri segja greidda dagpeninga sem dugðu fyrir tóbaki.  Svo var bara slappað af, horft á sjónvarpið, lesin blöðin og leikið sér í tölvunni.  Ósköp notalegt líf og á miklum launum.


mbl.is Dæmdur til að greiða 8,5 milljónir í sekt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er víst Jakob, að núna þegar fer að harðna á dalnum í efnahagsmálum, þá eigum við eftir að sjá meira af svona dómum.  Kannski gæti það orðið hluti af "mótvægisaðgerðum" ríkisstjórnarinnar, að það yrði tekið öðruvísi á svona brotum, eftir því í hvaða tilgangi þau væru framkvæmd?

Jóhann Elíasson, 29.11.2007 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband