Skattalækkanir

Geir H. Haarde, forsætisráðherraGeir H. Haarde, forsætisráðherra, gefur til kynna í viðtali við fréttaveituna Bloomberg í dag, til greina komi að bíða eitthvað með áformaðar skattalækkanir þar

Geir segir, að tímasetningar skattalækkana séu afar mikilvægar. Ekkert liggi á og stjórnvöld vilji tímasetja lækkanirnar með tilliti til þess sem sé að gerast hagkerfinu þar til dregið hefur úr þenslu og verðbólgu.

Þá er haft eftir Geir, að ríkisstjórnin ætli ekki að tengja skattalækkanir við kjarasamninga. 

Ekki hörð lending heldur snertilending

Geir segir, að íslenska hagkerfið stefni ekki í harða lendingu og allir hagvísar bendi til þess, að efnahagskerfið sé afar virkt. „Uppáhalds skilgreining mín í þessum lendingarnafngiftum er snertilending: að lenda mjúklega og taka síðan strax á loft aftur." 

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir, að stefnt skuli að frekari lækkun skatta á einstaklinga á kjörtímabilinu, meðal annars með hækkun persónuafsláttar. Einnig sé stefnt að því að lækka frekar skatta á fyrirtæki. 

Það er auðvelt að lofa og lofa skattalækkunum og gera síðan aldrei neitt.  Ég held að ekki ætti að vera að tala um einhverja snertilendingu í hagkerfinu.  Það rétta er að framundan er brotlending.  Og því er þetta ekkert nema bull hjá Geir, nema þetta sé eitthvað nýtt sem hann hefur lært þegar að hann fór til Svíþjóðar til að kenna þeim hagstjórn.

 


mbl.is Skattalækkun frestað?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband