Hreindýr

Hreindýrið í miðjunni er með töluvert magn af „skrauti Hreindýrahjörð þessi er að kroppa í svörðinn við gömlu heykögglaverksmiðjuna í Flatey á Mýrum. Ef myndin er nægilega skýr sést að einn tarfurinn er með krónu af öðru hreindýri fasta í sínum eigin hornum ásamt margra metra dræsu af rafmagnsgirðingarvír.

Þetta er til skammar að fara svona með dýr og ættu þeir, sem til þess hafa vald og getu, að gera eitthvað til að hjálpa vesalings dýrunum.  Hreindýr tengjast á vissan hátt jólunum, því í ævintýramyndum eru það hreindýr sem draga vagna jólasveinanna.  Ég ætla rétt að vona að þessi dýr þurfi ekki að vera að draga á eftir sér leifar af rafmagnsgirðingu um næstu jól.


mbl.is Með allt á hornum sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það styttist í að hreindýr felli hornin, fyrir utan kefldar kýr, þannig að tarfurinn ætti ekki að þurfa að drattast lengi með þessa dræsu á hausnum !!!

Jóli 9.12.2007 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband