Hækkun

Póst- og fjarskiptastofnun hefur samþykkt beiðni Íslandspósts hf. um hækkun á gjaldskrá fyrir bréf innan einkaréttar. Bréf í 20 gramma flokki hækka úr 60 krónum í 65 krónur og bréf í 50 gramma flokki hækka úr 70 krónum í 75 krónur. Hækkunin tekur gildi frá og með 1. janúar 2008.

Fyrst Dabbi kóngur hækkað ekki stýrivextina, hlaut að koma hækkun frá einhverjum.  Annars er stað forstjóra Íslandspósts Ingimundar Sigurpálssonar, svolítið skrýtinn þessa daganna.  Hann var á sínum tíma forstjóri hjá Eimskip, sem hefur nú verið sektað um verulegar upphæðir vegna þess að nýta sér markaðsráðandi stöðu sína gegn Samskipum hf.  Í dag er þessi maður sem staðinn var að því að brjóta lög orðinn forstjóri Íslandspósts og sem slíkur er hann formaður í Samtökum atvinnulífsins.  Ég hélt að sá sem bryti lög gæti ekki verið forstjóri hjá ríkisfyrirtæki, sem Íslandspóstur vissulega er, því öll hlutabréfin eru í eigu ríkisins.

Er ekkert lengur til hér á landi að menn þurfi að bera ábyrgð á sínum gjörðum eða a.m.k., skammast sín,  Nú verða nýir eigendur Eimskips að þrífa upp skítinn eftir þennan fyrrverandi forstjóra félagsins, því ekki mun hann gera það sjálfur, enda þrælupptekinn við að hækka verð á frímerkjum.


mbl.is Gjaldskrá fyrir bréf hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ef þú ert stjóri eða ráðamaður, þá þarftu ekki að bera neina ábyrgð, en rak Davíð ekki skúringakonu á sínum tíma úr ráðhúsinu ? fyrir einhverja hnýsni ? það er eins og mig minni það.  Sum sé þeir sem eru minnstir og lægstir þurfa að axla alla ábyrgðina bæði á stórum og smáum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 22.12.2007 kl. 10:57

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sammála, því að eftir því sem viðkomandi er hærra settur, þeim mun minni er ábyrgðin á þeirra gjörðum.  Öll ábyrgð í starfi er hjá þeim sem eru lægra settir t.d. skúringarkonan fræga.

Jakob Falur Kristinsson, 22.12.2007 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband