Mistök

Stjórnvöld í Tanzaníu hafa komist að þeirri niðurstöðu að stórfelld vanræksla hafi átt sér stað þegar gerð var aðgerð á heila sjúklings, sem þjáðist af hnjámeini. Á sama tíma var skorið í hné á manni sem þjáðist af heilaæxli.

Þann 8. nóvember gekkst Emmanuel Didas undir heilaaðgerð á  Muhimbili háskólasjúkrahúsinu í Dar Es Salaam þar sem fjarlægja átti heilaæxli sem ekki reyndist vera til. Á sama tíma gekkst  Emmanuel Mgaya, sem var með heilaæxli, undir aðgerð á hné.

Í skýrslu, sem heilbrigðisráðuneyti landsins hefur gert um málið, er vanrækslu lækna og hjúkrunarfræðinga kennt um mistökin.

Didas er nú í Indlandi til frekari læknismeðferðar og er hann sagður á batavegi. Mgaya lést fjórum dögum eftir að hann gekkst undir aðra aðgerð.

Þetta er skelfilegt að svona mistök geti átt sér stað.  Að ruglast svona á sjúklingum og í stað þess að fjarlægja heilaæxli er skorið upp hné og svo öfugt hjá hinum sjúklingnum.  Svona vanræksla er ófyrirgefanleg, enda kostaði þetta annan sjúklinginn lífið.


mbl.is Rugluðust á heila og hné
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sannarlega hrollvekjandi tilhugsun.  Gleðileg jól Jakob minn og farsælt komandi ár.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.12.2007 kl. 22:44

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Gleðileg jól Jakob minn, vona að þú eigir náðuga daga um hátíðarnar

Guðrún Jóhannesdóttir, 23.12.2007 kl. 23:29

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jakob. Óska þér og þínum innilega Gleðilegrar jólahátíðar.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.12.2007 kl. 00:44

4 identicon

Sæll Jakob.

Dálítið mikið að rglast á heila og hné. Þetta eru algjörir snillingar eða ???

Guð gefi þér og fjölskyldu þinni gleðileg jól og farsæld um ókomin ár.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir 24.12.2007 kl. 02:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband