Sæfari

Starfsmaður Slippsins gengur um borð í Sæfara í...Nýja Grímseyjarferjan Sæfari lagðist við bryggju á athafnasvæði Slippsins Akureyri ehf. eftir tveggja sólarhringa siglingu frá Hafnarfirði. Ferðin tók lengri tíma en áætlað var vegna vélarbilunar og slæms veðurs.  Skipið fór frá Hafnarfirði síðdegis á laugardag en lokið verður við endurbætur á skipinu á Akureyri áður en það hefur áætlunarsiglingar á milli Grímseyjar og lands í vor.

Er virkilega ekki ennþá búið að klára að laga þetta fræga skip.  Þetta er þó í rétta átt, nú er skipið að fara í endurbætur á Akureyri.  Ég ætla rétt að vona að Grímseyingar fái einhvern tímann þetta skip í sína þjónustu.  Það var búið að tala um að skipið yrði tilbúið um áramót en nú þarf það að fara í slipp áður en hæft verður að nota það.  Maður er fyrir löngu hættur að skilja alla þessa vitleysu og eins gott að nógu ríkur er eigandi skipsins til að geta staðið í þessu öllu og greitt alla reikninga.  Ég er farinn að vorkenna íbúum Grímseyjar hvað varðar alla þætti sem varða þetta skip og ekki var fyrsta ferðin gæfuleg.  Skipið komst ekki frá Hafnarfirði til Akureyrar án þess að bila á leiðinni.

Til baka


mbl.is Sæfari lagstur við bryggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband