Mörg hnífasett

Guðjón Ólafur Jónsson. 

Guðjón Ólafur Jónsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, sagði í Silfri Egils í dag, að hann væri með mörg hnífasett í bakinu eftir Björn Inga Hrafnsson, borgarfulltrúa flokksins. Sagði Guðjón Ólafur m.a., að Björn Ingi hefði unnið gegn sér fyrir kosningarnar 2003 og 2007.

Nú vaknar bar sú spurning hvort Björn Ingi Hrafnsson hafi borgað sjálfur öll þessi hnífasett eða hvort þau hafi verið greidd úr sjóðum Framsóknar eins og fötin sem Guðjón Ólafur ræðir um í trúnaðarbréfi sínu til framsóknarmanna.  Mikið hlýtur þessi aumingja maður að vera hraustur að hafa lifað þetta af og hvað gerði hann svo við alla hnífana þegar þeir voru teknir úr bakinu á honum.  Notaði hann kannski þá sjálfur til að reka í bakið á öðrum í sínu framapoti.  Það verður að kallast undarlegt trúnaðarbréf til flokksmanna, sem er ætlað að kveða niður gróusögur um ýmsa flokksmenn og bæta svo einni sögunni við sjálfur um Björn Inga og viðurkenna um leið að hann hafi ekki minnstu hugmynd hvort hún sé sönn eða ósönn.  Svo mikill trúnaðarbréf var nú þetta hjá Guðjóni Ólafi að hann sendi fjölmiðlum afrit af því.  Og allt þetta gerir hann með hagsmuni Framsóknar að leiðarljósi.  Annaðhvort er maðurinn svona heimskur eða bilaður á geði, nema að hvorttveggja sé.  Ég held að Guðjón Ólafur ætti að leita sér aðstoðar hjá læknum á sínum vandamálum.


mbl.is Með mörg hnífasett í bakinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hahahahaha góður

Frelsisson 20.1.2008 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband