Ný meirihluti

Ingibjörg Sólrún Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segist telja það mikið óheillaspor þær breytingar sem kynntar voru á meirihlutasamstarfinu í borginni í gær. Í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins segist hún telja nýjan meirihluta óstarfhæfan og hún hafi ekki trú á því að þetta samstarf muni lifa út kjörtímabilið.

Ætli þetta eigi nú ekki líka eftir að hafa áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið og sennilegt að það samstarf lifi ekki heldur úr kjörtímabilið.


mbl.is Ingibjörg Sólrún: telur nýjan meirihluta óstarfhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bíddu.....ég er bara ekki að fatta þetta  Erum við núna með 2 borgarstjóra??? Ég get ekki betur séð en að þetta sé orðið að einhæfum sirkús með eintómum trúðum  Eða er ég kanski bara skyndilega orðin þroskaheft?

ragga 22.1.2008 kl. 10:40

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ætli þeir séu ekki frekar þrír sá "gamli góði Villi" er örugglega ennþá launaður sem slíkur. Nei þú ert örugglega alveg í lagi Ragga mín, einhverjir aðrir sem ekki er alveg hægt að skilja...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.1.2008 kl. 13:38

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jú gamli góði Villi er enn á fullum biðlaunum sem eru um 1,100.000,- á mánuði og nú fer Dagur á slík laun en þar sem hann hefur setið svo stutt fær hann aðeins 3 mánuði en Vilhjálmur fékk 6 mánuði og nú bætist Ólafur F. Magnússon í hópinn og eru þá orðnir 3 á fullum borgarstjóralaunum.  Þegar Vilhjálmur tekur síðan við af Ólafi þá er Ólafur búinn að sitja nægjanlega lengi og fær því 6 mánaða biðlaun og ef Vilhjálmur verður ekki borgarstjóri eftir næstu kosningar á hann aftur rétt á 6 mánaðar biðlaunum.  Þannig að borgin þarf að greiða ansi mikið fyrir borgarstjóra á þessu kjörtímabili og fram á það næsta.

Jakob Falur Kristinsson, 23.1.2008 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband