Auð rými

Staðan hefur ekki batnað, því miður. Ef eitthvað er þá hefur hún versnað,“ segir Sveinn H. Skúlason, forstjóri Hrafnistu, þegar hann er inntur eftir því hvernig gangi að ráða í þau 20-30 stöðugildi sem enn var óráðið í sl. haust.

Hvar eru nú öll loforðin, sem gefin voru fyrir síðustu kosningar um að bæta aðstæður aldraðra.  Það er ekki nóg að byggja ný og ný dvalarheimili ef enginn vill vinna við á þessum stofnunum vegna lélegra launa.  Laun þeirra sem eru að vinna í dag á lægstu töxtum verður að hækka.  Nú nýlega sendi Hagstofan frá sér nýjar upplýsingar um framfærslukostnað einstaklings og þar kemur fram að sá kostnaður er talinn vera um 250 þúsund á mánuði eftir skatta, það er nettótekjur.  Vitað er um fjölda fólks sem hefur ekki hærri laun en 125 til 150 þúsund á mánuði og eru það brúttólaun og er þá eftir að draga frá skatta, lifeyrissjóðs-  og stéttarfélagsgjald.  Svo eru menn steinhissa að illa gangi að fá fólk til að vinna á þeim stöðum sem bjóða slík laun.  Í komandi kjarasamningum var mikill vilji hjá stéttarfélögum að taka sérstaklega á þessu vandamáli en þá þurfti ríkið að koma að lausn kjaradeilunnar, sem hún hefur ekki fengist til ennþá.


mbl.is Rými standa auð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband