Snjóflóð

Tvö snjóflóð hafa fallið á Vestfjörðum síðan í gærkvöldi, snjóflóð féll úr Súðavíkurhlíð í gærkvöldi og svo á veginn í Selabólsurð í Önundarfirði í nótt.

Svo er fólk að kvarta hér á suðvesturhorninu ef það kemur smá snjóföl og öll umferð fer úr skorðum og bílar fastir út um allt.  Ég er vanur því að þegar er vetur þá á að vera mikill snjór og þegar kemur sumar þá á að vera logn og blíða.  Þannig vil ég hafa það.  Ekki þessi eilífu umskipti, ýmist snjór eða rigning og slydda þar á milli.  Margar útgáfur af veðrinu á sama sólahringnum og allt rennur saman í eitt vetur og sumar, hvað veðurfar snertir.


mbl.is Snjóflóð á vegi á Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Ég bý í Reykjavík en er fæddur og uppalinn á Norðurlandi. Þar vandist ég einmitt þessu, snjó og kulda á veturna en hlýindum og þurrviðri á sumrin með ágætum skammti af hafgolu við og við. Þess vegna átti ég erfitt með að venjast hálfkákinu og hringlandahættinum í veðrinu í Reykjavík þangað til ég ákvað að láta það ekki á mig fá. Og núna geri ég alltaf ráð fyrir vindbelgingi, óstöðugu hitastigi, rigningu, slyddu, umhleypingum, slagviðri, hagléli, súld og öllum öðrum öfgafullum útgáfum af veðri á hverjum degi svo að þegar loksins kemur gott veður, jafnvel stundum tvo daga í röð kemur það svo þægilega á óvart.

corvus corax, 31.1.2008 kl. 11:38

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er dálítið óhugnanlegt að hlusta á.  Ég veit að fólki líður ekki vel í svona ástandi.  En vonandi verða ekki fleiri snjóflóð. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.1.2008 kl. 12:46

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er það sem margir á höfuðborgarsvæðinu virðast ekki skilja.  Líta bara svo á að þetta sé einhver landsbyggðarvandi sem þeim komi ekkert við.

Jakob Falur Kristinsson, 2.2.2008 kl. 07:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband