Kastró

Kastró í Havana fyrir mánuði.Fídel Kastró Kúbuforseti hefur sagt af sér og lýst því yfir að hann muni ekki taka aftur við stjórnartaumunum í landinu eftir veikindin sem hrjáð hafa hann að undanförnu.

Jæja ætlar hann að hvíla sig blessaður karlinn, en hann er þó búinn að þrauka í þessu í tæp 50 ár og mátt þola ýmislegt, bæði rétt og rangt.  En eitt er öruggt að hans mun verða minnst sem mikillar hetju þegar fram líða stundir.


mbl.is Kastró segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hann er allavega mannlegri en þessa Bushfífl, ef maður má vera svona orðljótur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2008 kl. 11:03

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er ekki til svo ljótt orð Ásthildur mín, að ekki megi nota það um Bush.

Jakob Falur Kristinsson, 19.2.2008 kl. 17:48

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Nei þessi illræmdi kommúnisti sem kúgaði þjóð sína

í tæpa hálfa öld verður ALDREI minnst sem hetju þegar

framlíða stundir. Heldur meiriháttar KÚGARI. Já það

mætti svo sannarlega spyrða þá saman, hann og Bush

& Co............

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 20.2.2008 kl. 01:06

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei hættu nú Guðmundur Jónas, Kastró var hetja og dýrkaður af sinni þjóð.  Íbúar Kúpu voru aldrei kúgaðir af Kastró, þetta er bara kjaftasaga sem er ættuð frá USA.  Hann sat af sér 10 bandaríska forseta, sem allir reyndu að drepa hann.  Hann stóðst áfallið þegar Sovétríkin liðuðust í sundur og höfðu hjálpað honum mikið áður fyrr.  Íbúum a Kúpu hefur ALDREI liðið betur en sl. 49 ár vegna aðgerða Kastró.  Ertu genginn í Framsókn aftur og þar með orðinn kolruglaður?

Jakob Falur Kristinsson, 21.2.2008 kl. 06:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband