Nýtt nafn

Á sínum tíma var ég skýrður Jakob eftir móðurafa mínum, en hann hét Jakob Falsson og var sonur hins mikla bátasmiðs sem lengi var í Bolungarvík Fals Jakobssonar.  Einn frændi minn mun hafa sótt það fast að ég yrði skírður Falur og væri þá aftur kominn Falur Jakobsson.  Kona Fals hét Júdit og yngsta dóttir mín er Júdit Krista Jakobsdóttir.  Nú er ég að endurskipuleggja mitt líf og hef fengið heimild hjá Þjóðskrá til að taka upp millinafnið Falur.  Þar sem Þjóskrá er alltaf uppfærð 1. desember ár hvert, mun þessi breyting ekki taka gildi fyrr en þá.  Þannig að eftir 1. desember 2008 mun ég heita Jakob Falur Kristinsson.  Þá mun ég nota skammstöfunina JFK, sem er mjög þekkt um heim allan, og geri aðrir betur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob. Þetta er flott nafn. Gangi þér vel í nýju vinnunni en farðu varlega að byrja með svo þú ofþreytir þig ekki.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 28.2.2008 kl. 18:55

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Engin hætta á því Rósa mín.

Jakob Falur Kristinsson, 29.2.2008 kl. 06:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband