Hátíðarstemming

Sannkölluð hátíðarstemning er nú á Siglufirði bæði vegna páskahátíðarinnar og þess að á föstudaginn langa var sprengt í gegn í Héðinsfjarðargöngum.

Til hamingju Siglfirðingar


mbl.is Hátíðarstemnig á Siglufirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob minn

Loksins, loksins. Hraði snigilsins í gangnagerð á Íslandi. Ég vil fá kröftugri tæki til að bora og bora í gegnum fjöll. Það væri fínt að fá bor frá Kárahnjúkum og fara hringferð um landið og bora og bora af fullum krafti.

Hvenær ætla Íslendingar að flytja úr torfkofunum?

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.3.2008 kl. 20:17

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Vildi Jakob, að hægt væri að óska þjóðinni til hamingju líka...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 23.3.2008 kl. 21:38

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já ég myndi vilja það Hafsteinn, en því miður er svo fátt hér á landi sem hægt er að gleðjast yfir og óska einhverjum til hamingju með.  Því hér er allt að fara til andskotans ef ekki lengra niður.

Jakob Falur Kristinsson, 1.4.2008 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband