Fagra Ísland

Þetta var slagorð Samfylkingar fyrir síðustu kosningar og átti að standa fyrir því að flokkurinn vildi setja stopp á alla stóriðju og virkjanir og hugsa um náttúruvernd.  En hvað skeður?  Umhverfisráðherra segist vera á móti fleiri álverum á sama tíma og flokksbróðir hennar Björgvin G. Sigurðsson tekur skóflustungu að nýju álveri í Helguvík og iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson, gefur út leyfi fyrir nýju álveri á Bakka við Húsavík.  Þegar formaður flokksins er spurð um þetta er alltaf sama svarið  "Samfylkingin heldur sig við stefnuna um Fagra Ísland og það sem er verið að gera nú rúmast vel innan þeirri stefnu".  Hver skilur þetta?  Ekki ég a.m.k.

Núna er olíuverð í hæðstu hæðum og fer hækkandi og samkvæmt öllum lögmálum markaðarins fylgja aðrir orkugjafar eftir.  Þess vegna sitjum við Íslendingar á gullnámu sem er jarðhitinn og fallvötnin.  Þess vegna er brjálæði að vera núna að gera nýja raforkusamninga á lágu verði langt fram í tímann eins og á sér stað gagnvart álverunum.  Álver skapar vissulega gjaldeyristekjur en þessi iðnaður þarf líka að kaupa nær allt sem þarf til framleiðslunnar erlendis frá og til þess þarf gjaldeyri og ef dæmið er reiknað til enda er nettó gjaldeyrissköpun miklu minni en t.d. sjávarútvegs og ferðaþjónustu.  Við eigum að flytja orkuna út í öðru formi en áli og þess vegna eigum við frekar að efla þær atvinnugreinar sem skapa mestar gjaldeyristekjur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband