Bakkavör

 Tap, sem nam 23,4 milljónum punda, var á rekstri Bakkavarar Group á öðrum ársfjórðungi samanborið við 15,7 milljóna punda hagnað á sama tímabili í fyrra. Á fyrri helmingi ársins nam tapið 36,2 milljónum punda en á fyrri hluta síðasta árs var 25,6 milljóna punda hagnaður.

Nú er fokið í flest skjól þegar þetta fyrirtæki er farið að skila tapi af rekstri.  Þá eigum við örugglega eftir að sjá mörg ljót uppgjör íslenskra fyrirtækja á næstunni.


mbl.is Tap hjá Bakkavör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Skrýtið þetta ferðalag Bakkavararbræðra. Ég man eftir þeim tveimur í einu herbergi við hliðina á fyrirtækinu  sem ég starfaði hjá í 10 ár, svo fóru þeir að blása út meira og meira eins og allir vita og við breyttum aðstöðu þeirra í lítinn spyrlasal. Ekkert kemur manni á óvart lengur :)

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 31.7.2008 kl. 18:19

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er sammála þér Tara.  Útrásin mikla sem öllu átti að bjarga er nú að koma illa í hausinn á mörgum mönnum.

Jakob Falur Kristinsson, 31.7.2008 kl. 18:21

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Greyin  WooHoo

Ásdís Sigurðardóttir, 1.8.2008 kl. 01:33

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er svo sem engin ástæða til að vorkenna þessum mönnum.  Þeir hafa hagað sér þannig á undanförnum árum, t.d. með einkaþotum, ofurlaunum og veisluhöldum sem hafa kostað hundruð milljóna.  Þeir gleymdu að leggja til hliðar fyrir mögru árin og vilja nú að ríkið bjargi þeim.

Jakob Falur Kristinsson, 1.8.2008 kl. 05:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband