Umhverfismat

Geir H. Haarde. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði í fréttum Útvarpsins að of snemmt væri að segja til um hvort úrskurður umhverfisráðherra vegna álvers á Bakka tefji framkvæmdir. Brýnt sé að hraða málinu eins og kostur sé.

Þessi ákvörðum Þórunnar Sveinbjarnardóttur virðist hafa farið illa í margan sjálfstæðismanninn.  En hún er bara að vinna sína vinnu, en sjálfstæðismönnum bregður auðvitað að ráðherra í ríkisstjórninni taki sjálfstæða ákvörðun.  Þeir eru svo vanir því að geta alltaf vaðið yfir samstarfsflokkinn.


mbl.is Brýnt að hraða umhverfismati
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: egvania

Takk fyrir innlitið hjá mér Jakob ég hef stundum litið við hér en held að ég hafi aldrei kvittað fyrir.

Kveðja Ásgerður

egvania, 1.8.2008 kl. 11:45

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Rétt er það, Jakob. Geir á sennilega ekki orð yfir dónaskapinn. Spurning hvað það tekur hann langan tíma að losa sig við þennan aðskotahlut og setja inn ráðherra sem veit hvernig kerfið virkar.

Villi Asgeirsson, 1.8.2008 kl. 12:09

3 identicon

En hugsið ykkur hvað það hefði verið æðislegtt að fá VG með þessu liði í stjórn þá hefði nú fyrst verið bió

Hannes 1.8.2008 kl. 13:01

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Villi Geir er þræl-bundin af samningi sínum við Samfylkinguna og breytir engri ráðherraskipa nema sá flokkur samþykki.  Málið er bara að hann átti aldrei að mynda þessa ríkisstjórn.  Það hefði verið betra að halda áfram með Framsókn og taka kannski Frjálslynda með til að meirihlutinn byggi ekki á einum manni.  Því tveir af þingmönnum Frjálslyndra eru úr Sjálfstæðisflokknum.

Jakob Falur Kristinsson, 1.8.2008 kl. 15:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband